Útgefið efni
Á þessari síðu verður safnað saman skýrslum og ritum á tölvutæku formi sem Þekkingarnetið hefur unnið, haft umsjón með eða gefið út. Af ýmsum ástæðum er ekki hægt að birta allt efni sem Þekkingarnetið kemur að, en reynt verður að birta það sem hægt er og aðgengilegt er á einföldu tölvutæku formi.
2013 Vor
Ársskýrsla 2012 og starfsáætlun 2013
Efni skýrslu:
Ársskýrsla Þekkingarnets Þingeyinga 2012 og starfsáætlun fyrir 2013. Gefin út árlega. Unnið af Óla Halldórssyni.
2013 Vor
Mannfjöldaþróun starfssvæðis Þekkingarnets Þingeyinga 2013
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni. Skýrslan er yfirlit yfir mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga sem nær frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri. Í skýrslunni kemur fram hvernig íbúafjöldi hefur breyst á tímabilinu 2002 - 2013 í einstökum sveitarfélögum og byggðakjörnum innan þeirra. Einnig er kynjahlutafall sveitarfélaganna og byggðarkjarnanna skoðað sem og svæðisins í heils og landsins alls til samanburðar.
2012 Haust
Þingey í Skjálfandafljóti: tækifæri og framtíð?
Unnið af Hildur Kristjánsdóttur, Óla Halldórssyni og Aðalsteini J. Halldórssyni. Skýrslan er niðustaða vinnu sem Þekkingarnetið tók að sér fyrir Héraðsnefnd Þingeyinga. Um er að ræða greiningu á tækifærum Þingeyjar í Skjálfandafljóti sem ferðamannastaðar og almennar nýtingar ásamt því að greina heppilegustu kosti til þess að bæta aðgengi í eyjuna.
2012 Vor
Mannfjöldaþróun starfssvæðis Þekkingarnets Þingeyinga 2012
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni. Skýrslan er yfirlit yfir mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga sem nær frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri. Í skýrslunni kemur fram hvernig íbúafjöldi hefur breyst á tímabilinu 2002 - 2012 í einstökum sveitarfélögum og byggðakjörnum innan þeirra. Einnig er kynjahlutafall sveitarfélaganna og byggðarkjarnanna skoðað.
2012 Vor
Könnun á viðhorfum til Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Nausts
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni. Um er að ræða könnun sem unnin var fyrir Langanesbyggð. Þetta var póstkönnun gerð meðal fólks sem komið er yfir sextugt til Dvalar- og hjúkrunarheimilisins Nausts.
2012 Vor
Ársskýrsla 2011 og starfsáætlun 2012
Efni skýrslu:
Ársskýrsla Þekkingarnets Þingeyinga 2011 og starfsáætlun fyrir 2012. Gefin út árlega. Unnið af Óla Halldórssyni.
2011 Haust
EQM-gæðahandbók Þekkingarnets Þingeyinga 2012
Efni handbókar:
Gæðahandbók Þekkingarnets Þingeyinga, unnin eftir EQM gæðakerfinu. Byggir á sjálfsmati stofnunarinnar. Ábyrgð og ritstjórn, Óli Halldórsson og Helena Eydís Ingólfsdóttir.
2011 Haust
Vímuvarnarsamningur Völsungs: Árangur og eftirfylgni
Efni skýrslu:
Sumarið 2011 vann Kjartan Páll Þórarinsson þessa skýrslu í samvinnu við Þekkingarnet Þingeyinga og Völsungs. Verkefnið gekk út á að kanna árangur af Vímuvarnarsamning Völsungs sem er samningur sem gerður er við iðkendur knattspyrnu hjá yngri flokkum Völsungs.
2011 Haust
Grunnur að EQM-gæðahandbók fyrir aðila í framhaldsfræðslu
Efni handbókar:
Handbókin er grunnur sem fræðsluaðilar sem vilja innleiða EQM gæðviðmið í sitt starf geta nýtt sér til að útbúa sína eigin gæðahandbók.
Verkefnið fékk styrk úr Fræðslusjóði. Unnið af starfsfólk símenntunarsviðs. Ábyrgð og ritstjórn, Óli Halldórsson og Helena Eydís Ingólfsdóttir.
2011 Vor
Ársskýrsla 2010 og starfsáætlun 2011
Efni skýrslu:
Ársskýrsla Þekkingarnets Þingeyinga 2010 og starfsáætlun fyrir 2011. Gefin út árlega. Unnið af Óla Halldórssyni.
2011 Vor
Dagvistunarmál í Langanesbyggð: netkönnun og samantekt
Efni skýrslu:
Unnið af Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur. Skýrslan var unnin af beiðni Langanesbyggðar. Um er að ræða netkönnun á meðal foreldra barna á dagvistunaraldri og óskir þeirra og væntingar til slíkrar þjónustu í sveitarfélaginu.
2011 Vetur
Mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarseturs Þingeyinga.
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni. Skýrslan er yfirlit yfir mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga sem nær frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri. Í skýrslunni kemur fram hvernig íbúafjöldi hefur breyst á tímabilinu 2002 - 2011 í einstökum sveitarfélögum og byggðakjörnum innan þeirra.
2011 Vetur
Fjölgar kreppan krónum? Efnahagslega áhrif ferðaþjónustu á Húsavík við breyttar samfélagsaðstæður
Efni skýrslu:
Unnið af Andra Val Ívarssyni og Óla Halldórssyni, ásamt fleiri starfsmönnum Þekkingarnetsins. Um er að ræða lokaskýrslu rannsóknar sem snýr að útgjöldum erlendra ferðamanna á Húsavík. Byggt er m.a. á viðhorfskönnun frá sumrinu 2010.
2010 Sumar
Viðhorfskönnun fyrir eldri borgara í Skútustaðahreppi
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni sumarið 2010 fyrir Skútustaðahrepp. Um er að ræða niðurstöður könnunar meðal eldri borgara í Mývatnssveit um ýmisa kosti varðandi aðhlynningu og fleira í þeim dúr.
2010 Vor
Árbók Þingeyinga: fréttir úr héraði 1958-2008.
Efni skýrslu:
Unnið af Tinnu Þórarinsdóttur haustið 2009. Skýrslan er samantekt á helstu upplýsingum á tímabilinu 1956 til 2008. Sérstaklega er horft á þá þætti sem geta skýrt hvernig samfélagið hefur þróast á þessu tímabili, til dæmis íbúaþróun.
2010 Vor
Viðhorfskönnun í Norðurþingi 2010 vegna sveitarstjórnarkosninga.
Efni skýrslu:
Unnið af Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur og Aðalsteini J. Halldórssyni. Könnunin sýnir viðhorf kjósenda í Norðurþingi til þeirra lista sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 2010. Einnig má sjá viðhorf til héraðsfréttamiðilsins Skarps og auglýsingamiðilsins Skránnar.
2010 Vor
Ársskýrsla 2009 og starfsáætlun 2010
Efni skýrslu:
Ársskýrsla Þekkingarnets Þingeyinga fyrir árið 2009 og starfsáætlun 2011. Gefin út árlega. Unnið af Óla Halldórssyni.
2010 Vetur
Mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarseturs Þingeyinga.
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni. Skýrslan er yfirlit yfir mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga sem nær frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri. Í skýrslunni kemur fram hvernig íbúafjöldi hefur breyst á tímabilinu 2002 - 2010 í einstökum sveitarfélögum og byggðakjörnum innan þeirra.
2010 Vetur.
Búsetugæði á Norðausturlandi: Starfssvæði Þekkingarseturs Þingeyinga.
Efni:
Þessi rannsókn var unnin af Grétu Bergrúnu Jóhannesdóttur og Aðalsteini J. Halldórssyni. Hún er unnin á árunum 2008 og 2009 með spurningakönnun sem send var til 1200 íbúa á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga hvort ár. Markmið hennar var að kalla fram viðhorf íbúa á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga til ýmissa samfélagsþátta, þjónustu og búsetuskilyrða. Rannsóknin fékk styrk úr Vaxtarsamning Norðausturlands.
2009 Haust.
Síldarárin á Raufarhöfn. Viðtöl við íbúa Raufarhafnar.
Efni:
Verkefni sem Tinna Stefánsdóttir vann fyrir Þekkingarsetur Þingeyinga sumarið 2009. Um er að ræða viðtöl við fimm einstakinga sem öll muna vel eftir sögu síldaráranna á Raufarhöfn. Sögu síldaráranna á Raufarhöfn hefur aldrei verið gerð nein skil og er verkefnið hugsað sem fyrsta skrefið í að varðveita og skrá þá sögu.
2009 Haust.
Íslenskuspilið - kennsluefni í íslensku fyrir útlendinga.
Efni:
Kennsluefni í íslensku fyrir útlendinga. Þekkingarnet Þingeyinga er útgefandi efnisins, höfundur þess er Selma Kristjánsdóttir. Spilið er þróað og hannað af Selmu Kristjánsdóttur við störf hjá Þekkingarsetri Þingeyinga við nýbúafræðslu. Vinna við spilið stóð yfir frá 2007-2009 og er spilið útgefið í september 2009. Íslenskuspilið er til sölu hjá Þekkingarneti Þingeyinga - pantanir sendast á netfangið hac@hac.is .
2009 Haust.
Vinabæjarsamstarf Þingeyskra sveitarfélaga - Ávinningur og annmarkar.
Efni skýrslu:
Unnið af Róbert H. Baldurssyni fyrir Þekkingarnet Þingeyinga. Markmið skýrslunnar er að kanna vinabæjarsamstarf þingeyskra sveitarfélaga og stöðu þeirra á alþjóðavettvangi. Róbert kemst að þeirri niðurstöðu að ýmislegt megi betur fara í þeim efnum og setur fram tillögur um úrbætur.
2009 Vor
Náttúruminjasafn Íslands - greinargerð.
Efni skýrslu:
Unnið af Þekkingarneti Þingeyinga og Atvinnuþróunarfélagi Þingeyinga. Skýrslan er gefin út í tilefni af hugmynd um rekstur Náttúruminjasafns Íslands í breyttri mynd, með höfuðstöðvar á Húsavík. Unnið hefur verið að málinu frá ársbyrjun 2009 í samvinnu fjölmargra aðila sem tengjast málinu í Þingeyjarsýslum.
2009 Vor
Mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarseturs Þingeyinga.
Efni skýrslu:
Unnið af Aðalsteini J. Halldórssyni. Skýrslan er yfirlit yfir mannfjöldaþróun á starfssvæði Þekkingarseturs Þingeyinga sem nær frá Vaðlaheiði í vestri til Bakkafjarðar í austri. Í skýrslunni kemur fram hvernig íbúafjöldi hefur breyst á tímabilinu 2002 - 2008 í einstökum sveitarfélögum og byggðakjörnum innan þeirra.
2008 haust
Efnahagsleg áhrif ferðaþjónustu á Húsavík - tilkoma hvaðaskoðunar.
Efni skýrslu:
Unnið af Rannveigu Guðmundsdóttur B.A. í ferðmálafræði og Andra Val Ívarssyni hagfræðinema. Þau unnu þetta verkefni sumarið 2008 með stuðningi frá Verkefnasjóði Þekkingarseturs Þingeyinga og Nýsköpunarsjóði námsmanna. Skýrslan fjallar um þær breytingar sem urðu á ferðaþjónustu á Húsavík með tilkomu hvalaskoðunar.
2007 vetur
Spatial north - Greinargerð um samþættrar áætlunargerðrar í Skútustaðahreppi.
Efni skýrslu:
Unnið af Haraldi Reynhardssyni, starfsmanni Þekkingarseturs Þingeyinga í samvinnu við Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga. Um er að ræða greiningu á aðstæðum í Skútustaðahreppi útfrá þeim meginmarkmiðum sem fram voru settar í verkefnisumsókn Spatial North sem eru að skilgreina og þróa bestu aðferðafræði við stefnumiðaða samþætta áætlanagerð og hvernig árangursríkast sé að framfylgja slíkri áætlanagerð við þær aðstæður sem ríkja á norðlægum jaðarsvæðum.
2007 haust
Vatnajökulsþjóðgarður - Margháttuð tækifæri eða frumhlaup?
Efni skýrslu:
Unnið af Kristveigu Sigurðardóttur, M.S. verkfræðingi frá KTH í Svíþjóð. Kristveig vann þetta verkefni sumarið 2007 með stuðningi frá Verkefnasjóði Þekkingarseturs Þingeyinga, Kísilgúrsjóði og Nýsköpunarsjóði námsmanna. Um er að ræða könnun á viðhorfi ferðaþjónustuaðila norðan Vatnajökuls til stofnunar fyrirhugaðs Vatnajökulsþjóðgarðs.
2007 haust
Jarðskjálftasetur á Kópaskeri
Efni skýrslu:
Greinargerð, unnin af Þekkingarsetri Þingeyinga (ÓH) fyrir Skjálftafélagið - félag áhugafólks um Jarðskjálftasetur á Kópaskeri. Greinargerðin er tekin saman vegna umsókna um fjármagn til Alþingis og sjóða haustið 2007.
2007 vor
Íbúaþróun innan sveitarfélagsins Norðurþings
Efni skýrslu:
Unnið af Haraldi Reinhardssyni vor/sumar 2007. Um er að ræða samantekt á íbúaþróun, kynjahlutfalli og aldursskiptingu innan sveitarfélagsins Norðurþings frá því fyrir sameiningu (sem varð árið 2006).
2007 vor
Setrið - geðræktarmiðstöð
Efni skýrslu:
Unnið af Haraldi Reinhardssyni vor/sumar 2007. Um er að ræða framvinduskýrslu fyrir starfsemi geðræktarmiðstöðvarinnar Seturins á Húsavík. Lögð var spurningakönnun fyrir notendur, aðstandendur og fagaðila sem tengjast starfseminni. Skýrslan var unnin fyrir Fjölskylduþjónustu Þingeyinga. Skýrslan er ekki birt á heimasíðunni en niðurstöður hennar er hægt að nálgast með samráði við Þekkingarsetrið og Félagsþjónustuna.
2007 vor
Ársskýrsla Þekkingarseturs Þingeyinga 2006
Efni skýrslu:
Skýrsla um starfsemi ársins 2006.
2006 haust
Þjóðgarðar og atvinna - Staða ferðaþjónustu við þjóðgarðana við Jökulsárgljúfur og Skaftafell (460 Kb)
Efni skýrslu:
Unnið af Lindu Margréti Sigurðardóttur, B.S. viðskiptafræðingi frá Háskólanum í Bifröst. Linda var ráðin til þessa verkefnis sl. vor eftir að Þekkingarsetrið hafið fengið styrkveitingu hjá Nýsköpunarsjóði námsmanna til þessarar rannsóknar. Þekkingarsetrið hafði einnig umsjón með verkefninu. Þessa skýrslu er hægt að nálgast hér á heimasíðu Þekkingarsetursins á pdf-formi.
2006 haust
Vaðlaheiðargöng - Mat á samfélagsáhrifum (2,5 Mb)
Efni skýrslu:
Unnið af Haraldi Reinhardssyni B.S.-nema í samfélags- og hagþróunarfræðum við Háskólann á Akureyri. Haraldur hafði frumkvæði að þessu verkefni og vann að því síðastliðið sumar á Þekkingarsetrinu. Þekkingarsetrið hafði umsjón með verkefninu. Þessa skýrslu er hægt að nálgast hér á heimasíðu Þekkingarsetursins á pdf-formi.
2006 haust
Háskólasetur á Húsavík - greinargerð
Efni skýrslu:
Stutt greinargerð tekin saman af Þekkingarsetri Þingeyinga og Náttúrustofu Norðausturlands. Greinargerðin var unnin vegna vinnu við fjármögnun rannsóknaseturs í sjávarspendýrafræðum innan veggja Þekkingarsetusins. Verkefnið var kynnt fjárlaganefnd Alþings haustið 2006 á grunni þessarar greinargerðar.
2006 sumar
Mat á umhverfisáhrifum - rannsóknarskýrsla (730 kb)
Efni skýrslu:
Þekkingarsetur Þingeyinga vann frá miðju ári 2005 fram að miðju ári 2006 að rannsókn um mat á umhverfisáhrifum á Íslandi í samstarfi við Skipulagsstofnun. Verkefnið hlaut styrk úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar og var unnið í samráði við Vegagerðina. Þessu verkefni lauk nú í sumar með útgáfu skýrslu sem ber heitið „Mat á umhverfisáhrifum - Innleiðing matsáætlana - Gæði og árangur“. . Niðurstöður verkefnisins eru birtar í meðfylgjandi skýrslu Þessi rannsókn hefur öðru fremur snúið að því að kanna hvaða áhrif innleiðing matsáætlana árið 2000 hafði á málsmeðferð, skilvirkni, gæði og kostnað matsferlisins og hvernig til hefur tekist við framkvæmd þessa. Þessa skýrslu er hægt að nálgast hér á heimasíðu Þekkingarsetursins á pdf-formi.
2006 janúar
Framvinduskýrsla Þekkingarseturs Þingeyinga 2003-2005
Efni skýrslu:
Þekkingarsetur Þingeyinga hóf starfsemi sína á grunni 3ja ára samnings um fjárframlög árið 2003. Þessi samningur rann út í ársbyrjun 2006. Í tilefni af lokum þessa 3 ára samnings um fjárframlög til stofnunar og reksturs Þekkingarsetursins gaf Þekkingarsetrið út stutta framvinduskýrslu þar sem farið er yfir starfsemi og uppbyggingu setursins þessi fyrstu misseri stofnunarinnar.
2005 haust
Heimskautsgerði á Raufarhöfn. (PDF 4,8 mb)
Efni skýrslu:
Samantekt upplýsinga um hina frumlegu nýsköpunarhugmynd um byggingu sk. heimskautsgerðis við Raufarhöfn (arctic-henge). Unnið undir stjórn Þekkingarseturs Þingeyinga og Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga í samstarfi við frumkvöðla verkefnisins á Raufarhöfn.
Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna og vann Jóna Kristín Gunnarsdóttir, nemi við Háskólann á Akureyri, að verkefninu sumarið 2005.
2005 haust
Akademísk ferðaþjónusta
Efni skýrslu:
Afrakstur sumarverkefnis sem unnið var á Þekkingarsetrinu 2005. Um er að ræða heimildaskýrslu Aðalsteins J. Halldórssonar um "akademíska ferðaþjónustu" og möguleika hennar í Þingeyjarsýslu. Verkefnið var styrkt af Nýsköpunarsjóð námsmanna, Impru og Kísilgúrsjóði.
2005 vor
Viðhorfskönnun vegna kosningar um sameiningu sveitarfélaga (PDF 1 mb)
Efni skýrslu:
Skýrsla með niðurstöðum könnunar á viðhorfi Þingeyinga til sameiningar 7 sveitarfélaga í sýslunni. Könnunin var unnin að frumkvæði Þekkingarseturs Þingeyinga í samstarfi við Framhaldsskólann á Húsavík. Nemendur FSH sáu um úthringingar undir leiðsögn og stjórn kennara FSH og forstöðumanns Þekkingarsetursins. Skýrslan var tekin saman af Þekkingarsetrinu í september 2005 eða skömmu fyrir sameininingakosningar, sem fóru fram þann 8. okt. 2005.
2004 sumar
Fiskeldisrannsókn, Húsavík (Fish-farming in Husavik, Iceland) - Pdf-3,9 MB
Efni skýrslu:
Samantekt á aðstæðum til fiskeldis við Húsavík. Unnin á Þekkingarsetrinu sumar/haust 2004. Skýrsla skrifuð fyrir mögulega framkvæmdar-/rekstraraðila á sviði fiskeldis, íslenska eða erlenda. Skýrslan er á ensku. Höfundur skýrslunnar er Ásmundur Gíslason, B.S. sjávarútvegsfræðingur








