Starfsemi
Þekkingarnet Þingeyinga starfar á grunni tveggja stofnana sem sameinaðar voru á árinu 2006, þ.e. símenntunarmiðstöðvarinnar Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga (FræÞings) og háskólanáms- og rannsóknasetursins Þekkingarseturs Þingeyinga. Hin sameinaða stofnun byggir á grunni hinna tveggja en nýtir nafn og kennitölu þeirrar síðarnefndu.
Starfsemi Þekkingarseturs Þingeyinga er þríþætt í meginatriðum:
1. Símenntun og fullorðinsfræðsla
Þekkingarnetið hefur skilgreindu hlutverki að gegna á sviði símenntunar og fullorðinsfræðslu með sama hætti og átta aðrar símenntunarmiðstöðvar víða um landið, sem menntamálaráðuneytið fjármagnar. Þannig er setrið miðstöð símenntunar og fullorðinsfræðslu í héraðinu og býður námskeiðsleiðir og hefur milligöngu um nám.
2. Háskólanám og -námsþjónusta
Rekstur öflugs háskólanámsseturs, með þeim búnaði sem til þarf og góðri vinnuaðstöðu er einn af hornsteinunum í starfsemi Þekkingarnetsins. Með þessu er markmiðið að þjónusta sívaxandi hóp háskólanema í héraðinu og skapa þeim skilyrði til að stunda nám sitt án þess að þurfa að flytja búferlum. Að auki koma starfsmenn Þekkingarnetsins að kennslu á háskólastigi á sínu sérsviði í samstarfi við háskólana í nágreninu.
3. Rannsóknastarf og -þjónusta.
Þekkingarnetið leggur mikla áherslu á að byggja upp öflugan þverfaglegan vettvang fyrir rannsóknir innan héraðs, þ.e. í Þingeyjarsýslum, með áherslu á þau svið sem skapa héraðinu sérstöðu og gefa efnivið til rannsóknarstarfs. Þá tekur setrið sjálft þátt í rannsóknaverkefnum á sérsviði starfsmanna eftir því sem möguleikar gefast.









