Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Staðsetning

Þekkingarnet Þingeyinga starfar á svæðinu frá Vaðlaheiði í vestri og austur fyrir Bakkafjörð. Stafsstöðvar eru víða um sýslu, misstórar umfangs.  Aðalstarfsstöðin er innan Þekkingarsetursins á Húsavík, en einnig er rekin öflug starfsstöð innan Menntasetursins á Þórshöfn.  Þá eru þjónustuver í Mývatnssveit, Kiðagili, á Laugum, Kópaskeri og Raufarhöfn.

Símenntunarhluti starfseminnar, þ.e. sem áður hét Fræðslumiðstöð Þingeyinga, hafði aðsetur á Kópaskeri fyrstu 5 starfsárin frá stofnun en fljótlega eftir að háskólanáms- og rannsóknahlutinn hóf starfsemi árið 2003 (undir nafni Þekkingarseturs Þingeyinga) færðist öll starfsemin undir sama þak á Húsavík. Fyrsta árið var starfsemin í bráðabirgðahúsnæði á 3. hæð Garðarsbrautar 5 á Húsavík, í húsi sem kallað er Garðar. Næstu 4 ár, eða frá 2004-2008 starfaði stofnunin í húsnæði Landsbanka Íslands á Húsvík að Garðarsbraut 19. 


Núverandi húsnæði Þekkingarsetursins að Hafnarstétt 3 á Húsavík. 

Í nóvember 2008 var starfsemin flutt í nýtt húsnæði að Hafnarstétt 3 á Húsavík.  Um er að ræða gamalt hús í eigu útgerðafélagsins Langanes hf. sem nýverið hefur verið innréttað sem skrifstofuhúsnæði. Þekkingarnetið leigirallt húsið á báðum hæðum. Skrifstofur eru aðallega á efri hæð en námsver og kennslustofa/salur á neðri hæð ásamt afgreiðslu hússins.  


Mynd