Fréttir Ţekkingarseturs Ţingeyinga
1.6.2012
Háskóli Íslands auglýsir umsóknarfrest í diplómanám viđ stjórnmálafrćđideild
Umsóknarfrestur 5. júní fyrir diplómanám. Ekki eru tekin skólagjöld við H.Í., en nemendur greiða s.n. skráningargjald, 60.000.- kr. f. árið: http://www.hi.is/adalvefur/umsokn_i_framhaldsnam
Við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands http://www.hi.is/stjornmalafraedideild/forsida stunda nú um 400 manns meistara- eða diplómanám á fimm mismunandi námsleiðum (sjá hér að neðan). Inngangsskilyrði á allar línur eru BA, BS eða B.ed próf í einhverri grein. Allar upplýsingar eru í ítarlegum kynningarbæklingi deildarinnar. http://www.hi.is/files/u198/framhaldsbaeklingur_fyrir_vef.pdf
Opinber stjórnsýsla, diplómanám, einnig í boði í fjarnámi á einföldu formi. Í boði eru auk almennrar diplómalínu sérhæfðar diplómalínur f. stjórnendur hins opinbera og stjórnendur í heilbrigðisþjónustu:
http://www.hi.is/sites/default/files/skjol/felagsvisindasvid/deildir/stjornmalafraedi/baeklingur_diploma_opinber_stjornsysla_11-12.pdf
http://www.hi.is/sites/default/files/skjol/felagsvisindasvid/deildir/stjornmalafraedi/baeklingur_diploma_heilbrigdis.pdf
Evrópufræði, diplómanám: Sl. haust hófst nýtt meistara- og diplómanám í Evrópufræðum. Með því vill stjórnmálafræðideild leggja sitt af mörkum til uppbyggingar náms og rannsókna á þessu sviði, en Evrópusambandið er lykilsamstarfsaðili Íslands í gegnum EES samninginn og Evrópa er stærsta markaðssvæði Íslands.
Um námið í kennsluskrá auk þess sem er í almenna kynningarbæklingi Stjórnmálafræðideildar ( http://www.hi.is/files/u198/framhaldsbaeklingur_fyrir_vef.pdf ):https://ugla.hi.is/kennsluskra/index.php?tab=nam&chapter=namsleid&id=820066&kennsluar=current
Alþjóðasamskipti: Umfang alþjóðasamskipta af margvíslegu tagi og þátttaka Íslands í starfi alþjóðastofnana og -samtaka vex stöðugt og kallar á starfsfólk með þekkingu á því sviði. Námið mætir þörf fyrirtækja, samtaka og hins opinbera að þessu leyti:
http://www.hi.is/stjornmalafraedideild/althjodasamskipti_diploma_og_meistaranam
Diplómanám í smáríkjafræðum: Aðeins hægt að hefja að hausti. Stjórnmálafræðideild H.Í. er leiðandi á sviði kennslu og rannsókna á þessu sviði. Í náminu er m.a. fjallað um þau tækifæri sem smáríki í alþjóðasamfélaginu standa frammi fyrir og þá veikleika sem þau þurfa að styrkja. Sérstök áhersla er á að greina stöðu smáríkja í Evrópusambandinu: http://www.hi.is/stjornmalafraedideild/smarikjafraedi_diplomanam
Kynjafræði- hægt að taka að verulegu leyti í fjarnámi á einföldu formi: Nám í kynjafræði við stjórnmálafræðideild skapar fólki óteljandi starfsmöguleika og fólk með jafnréttis- og kynjafræðimenntun starfar við kennslu- og fræðastörf, fjölmiðla- og upplýsingastörf, verkefna- og starfsmannastjórnun hjá hinu opinbera, hagsmuna- og frjálsum félagasamtökum:
http://www.hi.is/stjornmalafraedideild/kynjafraedi_diploma_og_meistaranam
Ef þú hefur frekari spurningar eða vilt ræða um þessa möguleika við einhvern þá endilega hafðu samband við einhverja undirritaðra.
Margrét S. Björnsdóttir, msb@hi.is, sími 525-4254
Elva Ellertsdóttir, elva@hi.is, sími 525-4573
Anna Margrét Eggertsdóttir , ame@hi.is, sími 525-5445








