Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir Þekkingarseturs Þingeyinga

30.1.2012

Nýtt frá EHÍ

Dæmi um námskeið í febrúar

 

Pílagrímaleiðin til Santiago de Compostella

 

Excel I - fjármál og rekstur

 

Don Kíkóti

 

Þjónusta við blinda og sjónskerta einstaklinga

 

Grunnnámskeið í verkefnastjórnun

 

Lestur ársreikninga

 

Anxiety disorders, theory and practice

 

Kínverska fyrir byrjendur

 

Danska II

 

Stjórnun fyrir nýja stjórnendur

 

Agile hugbúnaðargerð og Scrum

 

Hugþjálfun - leið til árangurs

Fréttir frá Endurmenntun

 

Nýr bæklingur - starfstengd námskeið

Kominn er út bæklingur með námskeiðum á vormisseri á sviðum fjármála, stjórnunar og starfsþróunar sem eiga erindi til einstaklinga á flestum sviðum atvinnulífsins. Hægt er að skoða hann hér – smellið á námskeiðsheitið til að fá frekari upplýsingar.

Námsskeiðslínur - umsóknarfrestur til 6. febrúar

Á vormisseri er tekið við nýnemum í námsskeiðslínurnar: Rekstur, stjórnun og markaðssetning smáfyrirtækja - markviss leið sem verður haldin í þriðja sinn en námskeiðslínan Lykilþættir þjónustu - markviss leið hefst í fyrsta sinn. Umsóknarfrestur í báðar námskeiðslínurnar er til 6. febrúar 2012.

Samstarf við fagfélög og fyrirtæki

Endurmenntun á í formlegu samstarfi við fjölmörg fagfélög sem felur m.a. í sér símenntun fyrir félagsmenn, afsláttarkjör og greiningu á fræðsluþörf. Meðal félaga sem eru í samstarfi eru Félag verk- og tæknifræðinga, Félag leiðsögumanna og Félag viðskipta- og hagfræðinga.
Endurmenntun hefur einnig gert formlega samstarfssamninga við fjölmörg fyrirtæki s.s. Landsbankann, Advania (áður Skýrr) og Skipti sem tryggir m.a. fyrirtækjunum afsláttarkjör af námskeiðsgjöldum.
Í siðustu viku voru nýir samstarfssamningar gerðir við Félag stjórnsýslufræðinga og Stjórnvísi og samningar endurnýjaðir við Ljósmæðrafélagið og Félag lífeindafræðinga.


Fleiri áhugaverð námskeið hér

 


Mynd