Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Fréttir Ţekkingarseturs Ţingeyinga

25.1.2012

Landvarđanámskeiđ Umhverfisstofnunar í fjarnámi.

Þekkingarnet Þingeyinga og Vatnajökulsþjóðgarður vekja athygli á landvarðanámskeiði Umhverfisstofnunar sem hefst fimmtudaginn 16. febrúar og stendur fram í miðjan mars. Í boði er að taka meirihluta námskeiðsins í fjarnámi. Nánari upplýsingar um námskeiðið, stundaskrá og námskeiðsgjald má finna á heimasíðu Umhverfisstofnunar, www.ust.is .

Landverðir starfa í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæðum. Helstu hlutverk þeirra eru fræðsla til ferðamanna, þátttaka í daglegum rekstri og viðhaldi svæða, auk þess að gæta þess að ákvæði friðlýsinga séu virt.  

Fjölbreytt sumarstörf hjá Vatnajökulsþjóðgarði verða auglýst um miðjan febrúar. Athygli er vakin á að í landvarðastöður ganga fyrir einstaklingar með landvarðaréttindi. Nánari upplýsingar um starfsemi þjóðgarðsins og sumarstörf má nálgast á heimasíðunni, www.vjp.is


Mynd