Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Fréttir Þekkingarseturs Þingeyinga

25.1.2012

Nýlegar breytingar á skattalögum - Excel - Viðskiptaáætlanir - Ársreikningar

Árið 2011 – Nýlegar breytingar á skattalögum

Á námskeiðinu verður farið yfir helstu breytingar á lögum um tekjuskatt og virðisaukaskatt svo og tryggingagjald árið 2011 er varðar einstaklinga og fyrirtæki.
Kennari: Ásmundur G. Vilhjálmsson lögmaður hjá SkattVís slf. og aðjúnkt í skattarétti við viðskiptafræðideild HÍ.

Hefst fös. 27. janúar
Nánari lýsing og skráning 

Excel I - fjármál og rekstur

Flýtileiðir eru kynntar og fleira sem hjálpar fólki að vinna með Excel. Farið er yfir allar helstu aðgerðir í Excel sem nýtast við vinnslu gagna, m.a. vinnslu með margar síður í senn og notkun nafna og fasta.
Kennari: Oddur Sigurðsson, sérfræðingur hjá Íslandsbanka.

Skráningarfrestur er til 7. febrúar
Nánari lýsing og skráning

Gerð viðskiptaáætlana - í fimm skrefum

Námskeiðið er byggt upp í fimm skrefum og hefst á umfjöllun um viðskiptahugmynd - leit, mat og val hugmynda, því næst er fjallað um markaðsþátt viðskiptaáætlana, þá framkvæmdahluta og fjárhagshluta og að lokum er fjallað um verðmat og kynningu viðskiptaáætlana.
Kennarar: Páll Kr. Pálsson, hagverkfræðingur og
Þórður Freyr Sigurðsson, viðskiptafræðingur.

Skráningarfrestur er til 23. febrúar
Nánari lýsing og skráning

 

 

Lestur ársreikninga

Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja geta lesið ársreikninga fyrirtækja og skilið þær upplýsingar sem þar er að finna um afkomu og efnahag.
Kennari: Dr. Gunnar Óskarsson, aðjunkt við viðskiptafr.deild HÍ

Skráningarfrestur er til 9. febrúar
Nánari lýsing og skráning

Greining ársreikninga

Gerð verður grein fyrir helstu greiningaraðferðum s.s. láréttri og lóðréttri greiningu (innan fyrirtækis og milli fyrirtækja) en megináherslan verður á kennitölugreiningu. Unnið verður með tvo nýlega ársreikninga.
Veitið athygli: Þeir sem sækja bæði námskeiðin Lestur ársreikninga og Greining ársreikninga fá 20% afslátt af hinu síðara.
Kennari: Dr. Gunnar Óskarsson, aðjunkt við viðskiptafr.deild HÍ

Skráningarfrestur er til 1. mars
Nánari lýsing og skráning



Fleiri námskeið í flokknum Fjármál og rekstur


Mynd