Fréttir Þekkingarseturs Þingeyinga
2.1.2008
Starfsemi komin á fullt á nýju ári
Starfsemi Þekkingarsetursins er nú komin á fullt í byrjun nýs árs.
Um þessar mundir er verið að ganga frá námsvísi vorannar í prentun. Námsvísirinn verður póstsendur til allra heimila og vinnustaða frá Fnjóskárdal í vestri til Bakkafjarðar í austri næstkomandi föstudag (4. janúar).
Sitthvað fleira mun taka tíma starfsfólks Þekkingarsetursins á næstu dögum. M.a. er árvisst í ársbyrjun að klára gerð skýrslna og greinargerða vegna einstakra þátta starfseminnar á nýliðnu ári.








