Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Námsþjónusta

 

Þekkingarnet Þingeyinga býður upp á ýmsa þjónustu fyrir námsmenn sem og fyrirtæki og stofnanir þegar kemur að námi og starfi.
 

Fartölvuver
Þekkingarnetið hefur til umráða og afnota tölvuver, sem samanstendur af 15 fartölvum í sérútbúnum kössum til flutninga. Tölvuverið er hægt að taka með sér nánast hvert sem er þar sem aðstaða er til að setja upp tölvur. Þekkingarnetið hvetur alla, stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök til að kynna sér þessa möguleika til námskeiðahalds. Reynt verður að koma til móts við allar óskir og þarfir til námskeiðahalds með færanlega tölvuverið í farteskinu.
 

Náms- og starfsráðgjöf
Náms- og starfsráðgjafi ÞÞ sinnir aðallega verkefninu „Þitt val - þín leið. Námsráðgjöf á vinnustað" sem unnið er í samvinnu Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins, símenntunarmiðstöðvanna og aðildarfélaga ASÍ. Markmið verkefnisins er að hvetja starfsmenn fyrirtækja og stofnanna til að bæta við sig þekkingu, auka færni og bjóða félagsmönnum stéttarfélaganna upp á náms- og starfsráðgjöf á vinnustað. Forsvarsmenn fyrirtækja og félagsmenn stéttarfélaganna, í samstarfi við þá, geta óskað eftir heimsókn náms- og starfsráðgjafa á vinnustaðinn sinn með því að hafa samband við náms- og starfsráðgjafa Þekkingarnetsins. Að auki sinnir náms- og starfsráðgjafi ÞÞ þó allri almennri náms- og starfsráðgjöf fyrir háskólanema og aðra sem þarfnast leiðsagnar varðandi nám, störf og áhugasvið. Þeir sem vilja nýta sér þjónustu náms- og starfsráðgjafa geta haft samband við Hilmar Val með því að senda póst á netfangið hilmar@hac.is eða hringt í síma 464-5104.
 

Styrkir til náms
Í mörgum tilvikum eiga þeir sem sækja námskeið hjá Þekkingarnetinu rétt á námskeiðsstyrk frá sínu stéttarfélagi. Réttindi til styrkja eru mismikil hjá stéttarfélögum en algengt er að þátttakendur námskeiða eigi rétt á náms- eða endurmenntunarstyrk af einhverju tagi hjá sínu stéttarfélagi. Kynntu þér möguleika á námsstyrkjum hjá þínu stéttarfélagi!
 

Fjarfundabúnaður
Þekkingarnet Þingeyinga hefur á undanförnum misserum unnið markvisst að því að koma upp námsaðstöðu með fjarfundarbúnuðum víðs vegar um báðar Þingeyjarsýslurnar. Nú er svo komið að sex fjarfundabúnaðir eru staðsettir utan Húsavíkur og eykur það enn frekar möguleika fólks til að stunda fjarnám eða sækja fundi. Þekkingarnetið vinnur að því í samstarfi við sveitarfélögin að byggja upp og bæta námsaðstöðu og námsver á þjónustusvæðinu.  

Staður

Heimilisfang Aðstaða Tengiliður
Húsavík     

Hafnarstétt 3    

 

 

400 fm aðalhúsnæði ÞÞ. Skrifstofur, námsver, kennslu- og fundarými, 3 fjarfundabúnaðir.  

 

Þekkingarnet: 464 5100

Óli Halldórsson
464 5102/868 7600

Aðalsteinn Halldórsson
464 5103
/863 6629

Helena Eydís Ingólfsdóttir
464-5106/862 1687

Þórshöfn Menntasetrið á Þórshöfn, Langanesvegi 1 70 fm húsnæði deilt með Frhsk. á Laugum
Skrifstofa, námsver, fjarfunda- og kennslurými.

Menntasetrið: 464 5142

Gréta Bergrún Jóhannesdóttir
464 5142/847 4056

Raufarhöfn Skrifstofa Norðurþings, Aðalbraut 2, Fjarfunda- og próftökuaðstaða og nettenging Róbert Bjarnason
862 4436/465 1241
Kópasker Skrifstofa Norðurþings, Bakkagötu 10 Fjarfunda- og próftökuaðstaða og nettenging Gunnþóra Jónsdóttir
465 2188/465 2450
Laugar Framhaldsskólinn á Laugum Fjarfunda- og próftökuaðstaða og nettenging Hallur Reynisson
862 8729/464 6300
Bárðardalur Kiðagil skólabúðir Fjarfunda-, náms- og próftökuaðstaða og nettenging Guðrún Tryggvadóttir
867 9528/464 3290
Mývatnssveit Grunnskólinn í Reykjahlíð Fjarfunda- og próftökuaðstaða og nettenging Sólveig Jónsdóttir
849 7749/464 4375

Mynd