Sápugerð 4,5 kest.
Á námskeiðinu er farið yfir það hvernig sápa verður til, hvaða efni og áhöld þarf til sápugerðar í föstu formi. Algeng aðferð verður kennd en fleiri nefndar. Allir eiga að geta búið til sápu eftir eigin uppskriftum að loknu námskeiðinu.
Leiðbeinandi: Ólafur Halldórsson. 
Tími: 26. október kl. 19:00-22:00.
Verð: 10.500,-
|
Yoga 8 kest.
Langar þig að efla sveigjanleika og styrk líkamans? Viltu læra að njóta augnabliksins? Ertu í leit að innri kyrrð? Þá er Yoga fyrir þig! Kennd verða undirstöðuatriði í Yoga, námskeiðið er gott fyrir alla sem láta sér annt um líkama sinn og sál. Léttur hádegisverður innifalinn í þátttökugjaldi.
Leiðbeinandi: Anna Dóra Hermannsdóttir. 
Tími: 29.-30. október. Kennt verður á kl. 10:00-14:30 báða dagana.
Verð: 13.000,-
|
Smáréttir og snittugerð 4 kest.
Farið verður yfir helstu gerðir af snittum. Ýmsir tapasréttir (smáréttir) verða líka á boðstólum. Í upphafi er sýnikennsla, svo fá þátttakendur tækifæri til að spreyta sig sjálfir. Að lokum verður smakkað á kræsingunum.
Leiðbeinandi: Olga Hrund.
Tími: 10. nóvember.
Verð: 8.500,-
|
Horn og bein 8 kest.
Á námskeiðinu læra þátttakendur helstu aðferðir í horna- og beinavinnslu. Námskeiðið hentar bæði byrjendum sem og lengra komnum.
Allt efni og matur á námskeiðstíma er innifalið í verði.
Leiðbeinandi: Ósk Helgadóttir og Sigríður Ívarsdóttir.
Tími: 11.-12. nóvember, kl. 18:00-22:00 og 9:00-14:00.
Verð: 20.000,-
|
Útskurður 24 kest.
Fyrir byrjendur og lengra komna. Kennd beiting útskurðarjárna og grunnatriði við útskurð í tré. Unnið út frá kunnáttu hvers og eins. Matur á námskeiðstíma innifalinn í verði.
Leiðbeinandi: Jón Hólmgeirsson.
Tími: 4.-6. nóvember. Föstudag kl. 18:00-21:00, laugardag kl. 9:00-15:00 og sunnudag kl. 9:00-14:00.
Verð: 20.000,-
|