Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Námskeið á Kópaskeri

Úrbeining                                                 12 kest.

Tveggja kvölda námskeið í samstarfi við Fjallalamb. Fyrra kvöldið læra þátttakendur hvernig gengið er frá lambskrokk í frystikistuna, þ.e. hvernig skal úrbeina og saga kjötið. Þá verður útskýrt hvernig á að gera bæði kæfu og rúllupylsu, gefnar ráðleggingar um eldun og uppskriftir fylgja með. Seinna kvöldið læra þátttakendur að úrbeina læri og frampart og fá að spreyta sig á því. Eitt læri og einn frampartur innifallinn í námskeiðsgjaldi. Hámarksfjöldi 8 manns.

Leiðbeinandi: Kristján Arnarson.

Tími: 31. okt og 1. nóv. kl. 18:00-22:00.

Verð:  16.500

 

Framkoma og sjálfstyrking 9 kest.

Áhersla er lögð á framkomu og framsögn og þátttakendur þjálfaðir í að tala fyrir framan hópinn.

Leiðbeinandi: Rannveig Benediktsdóttir.  

Tími: 7. og 8. nóvember, kl. 18:00-21:00.

Verð: 18.500

 


Mynd