Námskeið á Húsavík
Spænska II 30 kest. Tími: Hefst 24. október. Kennt mánud. og miðvikud. kl. 20:00-22:00. Verð: 28.500,-
|
Kransakökunámskeið 6 kest.Á námskeiðinu læra þátttakendur að búa til kransaköku sem þeir geta síðan fryst og boðið upp á við hátíðlegt tækifæri. Allt hráefni og bakstur er innifalið í verðinu. Þátttakendur eru beðnir um að taka með sér ílát undir kökuna á námskeiðið. Leiðbeinandi: Ingólfur Jónsson. Tími: 10. nóvember kl. 18:00-22:00. Verð: 9.500,-
|
Vín og reyktur matur 3 kest.Það er ekki sama hvaða vín er notað með tað- eða heitreyktum silungi, reyktur lax er mildari en ella og svo er eilífðar spurningin um vínið sem hentar með hamborgarahryggnum og hangikjötinu. Leitað verður svara í gegnum víðtæka smökkun með Dominique frá Vínskólanum. Leiðbeinandi: Dominique Plédel Jónsson. Tími: 18. nóvember kl. 19:30-21:30. Verð: 9.500
|
Heimavinnsla mjólkurafurða – Ísgerð- Samstarf við Þekkingarnet þingeyinga Námskeiðslýsing: Að þátttakendur öðlist færni í ísgerð til heimabrúks. Námskeiðið hentar einnig þeim sem hyggjast fara út í ísframleiðslu. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verklegri kennslu/sýnikennslu. Helstu efnisþættir: Saga og þróun ísgerðar, fræðsla um hráefni og efnasamsetningu íss, mismunandi aðferðir við ísgerð og ísblönduútreikningar. Leiðbeinandi: Jón Brynjar Birgisson mjólkurfræðingur og ísáhugamaður. Stund og Staður: þri. 8. nóv. kl 10.00-17.00 (8 kennslustundir) á Húsavík. Verð: 13.500.- kr. Ísgerðarbók innifalin í verði. Skráningar: endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000 (fram komi nafn, kennitala, heimili og sími). Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2000 kr (óafturkræft) á reikninginn 354-26-4237, kt. 411204-3590. Senda staðfestingu á netfangið endurmenntun@lbhi.is
|









