Námskeið á Bakkafirði
Tréútskurður 15 kest.Námskeiðið hentar jafnt byrjendum sem þeim er eitthvað hafa fengist við útskurð. Hver og einn hefur sitt vinnuborð sem yfirleitt er staðið við. Það gefur bestu vinnustellingarnar, en einnig er hægt að sitja við verkið. Byrjað er á grófu, einföldu verkefni og æfð undirtöðuatriði og rétt beiting verkfæranna, sem eru aðallega útskurðarjárn af mörgum gerðum og stærðum. Síðan ræður áhugi og færni framhaldinu. Þátttakendur þurfa ekki að taka neitt með sér, en velkomið að koma með sín eigin áhöld og efni, ef til eru. Mest verður unnið í birki. Innifalið er efni í einn hlut. Tími: 15. og 16. nóvember. Athugið skráningu lýkur 6. nóvember!
|
Íslenska IB 30 kest.Fjallað verður um uppbyggingu tungumálsins. Lögð er áhersla á mál til daglegrar notkunar t.d. kveðjur, tölur, tímahugtök, einstaklingurinn sjálfur, áhugamál, fjölskyldan, hefðir og venjur. Leiðbeinandi: Heiðrún Óladóttir. Tími: Hefst 24. október. Kennt mánud., miðvikud. og fimmtud. kl. 16-18. |









