Fjarnámskeið og fjarnám
Fjarnámskeið og fjarnám
Endurmenntun Háskóla Íslands
Endurmenntun Háskóla Íslands er sífellt að auka framboð sitt á námskeiðum í fjarfundi og námsbrautum í fjarnámi. Með þessari þjónustu er sérstaklega verið að koma til móts við fólk á landsbyggðinni og hefur verið mikil ánægja með þetta aukna námsframboð.
Hægt er að skrá sig á fjarnámskeið EHÍ hjá Þekkingarneti Þingeyinga
Eftirfarandi námskeið er hægt að sækja í fjarfundabúnaði á fjarfundastöðum Þekkingarnets Þingeyinga.
Lausnamiðuð nálgun - Skráningarfrestur er til 23. febrúar 2012.
Hvenær: 05.03.2012 - 06.03.2012
Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja horfa á lausnirnar frekar en vandamálin. Markmið og tilgangur námskeiðsins er að kynna þátttakendum árangursríka aðferð og ýmsar leiðir sem geta nýst fólki við að ná markmiðum sínum í lífi og starfi.
Öflugt sjálfstraust - Skráningarfrestur er til 27. febrúar 2012.
Hvenær: 06.03.2012 - 20.03.2012
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Kennsla er í formi fyrirlestra, umræðna, verkefna og æfinga.
Val á rekstrarformi fyrir atvinnustarfsemi - Skráningarfrestur er til 27. febrúar 2012.
Hvenær: 07.03.2012 - 07.03.2012
Þeir sem eru að hefja atvinnurekstur velta iðulega fyrir sér hvaða form þeir eigi að hafa á fyrirtæki sínu. Eiga þeir að stunda atvinnureksturinn á eigin kennitölu eða kennitölu félags og hvaða félags er þá gjarnan spurt.
Ein. FLE: 3 Skatta- og félagaréttur.
Stjórnun breytinga - hlutverk stjórnenda og þáttur starfsmanna - Skráningarfrestur er til 5. mars 2012.
Hvenær: 14.03.2012 - 28.03.2012
Kynntar verða hagnýtar lausnir í breytingum sem byggja á helstu kenningum og aðferðum breytingastjórnunar.
Sálgæsla og áfallahjálp - samfylgd í kjölfar áfalla - Skráningarfrestur er til 5. mars 2012.
Hvenær: 14.03.2012 - 28.03.2012
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist færni og innsæi á bæði sálræna þætti og tilvistarleg áhrif áfalla á líf skjólstæðinga og aðstandenda þeirra. Kynntar eru helstu leiðir sem hægt er að nota til að hjálpa þolendum áfalla og aðstandendum sem þurfa að vinna með þungbæra lífsreynslu.
Vinnugleði - mín vinna, mitt viðhorf - Skráningarfrestur til 21. mars 2012
Hvenær: 30.03.2012 - 30.03.2012
Hagnýtt námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á að bæta sig, blómstra og auka vinnugleði sína í daglegu starfi.
Símenntun Háskólans á Akureyri
Símenntun HA býður upp á fjölbreytt úrval náms samhliða starfi.
Fjarnám frá öðrum símenntunarmiðstöðvum, framhalds- og háskólum
Að auki bjóða fjölmargir framhaldsskólar, háskólar og fleiri aðilar nú upp á námskeið í fjarkennslu. Þekkingarsetur Þingeyinga hefur á að skipa kennslustofu fullbúinni með fjarfundabúnaði, aðstöðu til sjálfsnáms og hefur auk þess umsjón með framkvæmd prófa í samráði við viðkomandi skóla.
Stundum þarf hins vegar að skrá sig í viðkomandi skóla og/eða námskeið með töluverðum fyrirvara. Hafið samband við okkur til að afla ykkur nánari upplýsinga.
Eftirtaldir aðilar eru meðal þeirra sem bjóða upp á námskeið í fjarkennslu
http://www.unak.is/?d=14&m=forsida









