Náttúrustofa Norðausturlands
Náttúrustofa Norðausturlands hefur aðsetur innan Þekkingarsetursins á Húsavík og er ein af meginstoðum setursins. Náttúrustofan var stofnuð samhliða Þekkingarsetri Þingeyinga [forvera Þekkingarnets Þingeyinga] en lýtur ekki stjórn setursins að neinu leyti heldur samnýtir aðstöðu og á náið samstarf um margvísleg verkefni við Þekkingarsetrið. Náttúrustofan leigir skrifstofuaðstöðu og rannsóknarrými innan Þekkingarsetursins á Húsavík og hefur aðgang að fundarsal, fjarfundabúnaði og netkerfi setursins.