Hvalasafnið
Þekkingarnet Þingeyinga og Hvalamiðstöðin á Húsavík eiga með sér nokkurt samstarf. M.a. um samnýtingu á húsnæði, t.a.m. aðgang að fyrirlestrasal Hvalamiðstöðvarinnar, en Þekkingarnetið leigir salinn á veturna til námskeiðahalds og fjarfunda. Stofnanirnar eru staðsettar hlið við hlið á Hafnarstéttinni á Húsavík.









