Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Hólaskóli

Samstarf milli Þekkingarnets Þingeyinga og Hólaskóla hefur verið töluvert. Þann 21. mars 2006 var skrifað undir samstarfssamning milli stofnananna tveggja á Hólum í Hjaltadal.  Samstarf við Hólaskóla er mjög mikilvægt fyrir Þekkingarnetið fyrir margra hluta sakir. Hólaskóli starfar fyrir það fyrsta við aðstæður sem að mörgu leyti eru hliðstæðar starfsvæði Þekkingarnetsins. Þetta varðar t.d. fólksfjölda á svæðunum, samsetningu byggðar og fjarlægð frá Akureyri. Þá byggir Hólaskóli á gífurlega sterkri og langri skólahefð og -sögu sem styrkir stofnunina í sínu faglega starfi.  Samvinna og hugmyndastreymi milli skóla, setra og rannsóknastofnana á landsbyggðinni er nauðsynlegt þessum stofnunum og skapar ef vel tekst til frjóan vettvang fræðastarfs og menntunar á landsbyggðinni. 

Samstarfssamningur Þekkingarnets Þingeyinga og Hólaskóla (21. mars 2006).


Mynd