Háskólinn á Akureyri
Háskólinn á Akureyri og Þekkingarnet Þingeyinga eiga töluvert samstarf. Háskólinn á Akureyri tilnefnir einn mann í stjórn Þekkingarnetsins. Frá árinu 2004 hefur forstöðumaður haft umsjón með og kennt námskeið í viðskipta- og raunvísindadeild (áður Auðlindadeild) H.A. Þá hefur frá því að háskólanámssetrið var opnað á vegum Þekkingarnetsins verið töluvert mikil þjónusta veitt nemum Háskólans á Akureyri sem búsettir eru í Þingeyjarsýslum. Í framtíðinni er stefnt að áframhaldandi nýtingu aðstöðu Þekkingarnetsins fyrir nema H.A., móttöku nemendahópa frá H.A. og samvinnu um rannsóknaverkefni.
Í desember 2005 var skrifað undir samstarfssamning milli stofnananna sem kveður á um samvinnu á ýmsum sviðum.
Samstarfssamningur Háskólans á Akureyri og Þekkingarnets Þingeyinga.









