Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Verkefnasjóður

R E G L U R um

Verkefnasjóð Þekkingarseturs Þingeyinga

1. gr. Heiti og ábyrgð
Sjóðurinn heitir Verkefnasjóður Þekkingarseturs Þingeyinga og starfar með því skipulagi og markmiði, sem segir í reglum þessum. Til sjóðsins er stofnað á vegum Þekkingarseturs Þingeyinga og telst Þekkingarsetur Þingeyinga eigandi þeirra fjármuna sem sjóðnum berast. Stjórn Þekkingarsetursins ber ábyrgð á sjóðnum og úthlutun úr honum.  

2. gr. Markmið Verkefnaasjóðs ÞÞ
Markmið sjóðsins eru í samræmi við markmið skipulagskrár Þekkingarseturs Þingeyinga, sem kveður m.a. á um að Þekkingarsetrið skuli vera miðstöð rannsóknastarfs og rannsakenda í Þingeyjarsýslum og hafa frumkvæði að rannsóknaverkefnum og rannsóknastarfi í héraðinu. Markmið sjóðsins eru:

  • að stuðla að rannsóknastarfi í Þingeyjarsýslum.
  • að styrkja stúdenta, sem eru að vinna að lokaprófsverkefni, til rannsóknarstarfa í Þingeyjarsýslum
  • að afla þekkingar á umhverfi og menningu Þingeyjarsýslna með rannsókna- og þróunarverkefnum.
  • að stuðla að atvinnusköpun í heimabyggð fyrir þingeyskt háskólafólk og eflingu byggðar.

3. gr. Stjórn sjóðsins
Stjórn sjóðsins skal vera í höndum stjórnar Þekkingarseturs Þingeyinga eins og hún er skipuð hverju sinni. Stjórn er heimilt að fela framkvæmdaráði Þekkingarsetursins stjórn sjóðsins alfarið í sínu umboði.  

4. gr. Tekjur og gjöld Verkefnasjóðs ÞÞ
Tekjuöflun sjóðsins er á ábyrgð Þekkingarseturs Þingeyinga. Leitað skal eftir nokkurra ára skriflegum samningum við styrktaraðila þar sem framlög þeirra verða skilgreind. Reikningsár sjóðsins skal vera almanaksárið og skal sjóðurinn færast með sérstökum bókhaldslykli í bókhaldi Þekkingarseturs Þingeyinga. Tekjur og gjöld sjóðsins skulu vera aðgreind frá öðrum rekstri Þekkingarsetursins. Þekkingarsetur Þingeyinga sér um bókhald sjóðsins og önnur störf sem nauðsynleg eru til að tryggja starfrækslu sjóðsins og er heimilt að greiða kostnað sem fylgir umsýslu sjóðsins úr sjóðnum. Komi til þess að sjóðurinn verði af einhverjum ástæðum lagður niður skulu fjármunir sjóðsins renna til reksturs Þekkingarseturs Þingeyinga. 

5. gr. Styrkveitingar
Auglýsa skal ár hvert fyrir 1. maí eftir styrkumsóknum úr sjóðnum, séu nægilegir fjármunir til reiðu. Með umsókn skal umsækjandi leggja fram verklýsingu og verkáætlun um hvenær verk hefst og hvenær verki lýkur. Einnig skal umsækjandi gera glögga grein fyrir mikilvægi verkefnisins fyrir Þingeyjarsýslur, með hvaða hætti niðurstöðurnar eru mikilvægar og kunna að gagnast í heimahéraði. Stjórn er heimilt að leita álits sérfræðinga áður en hún tekur ákvörðun um styrkveitingu. Stjórn sjóðsins (stjórn Þekkingarsetursins) getur einnig nýtt fjármagn úr sjóðnum að eigin frumkvæði til tímabundinna verkefna sem stofnunin telur falla að markmiðum sjóðsins án undangenginna auglýsinga.  

6. gr. Styrkhæf verkefniEftirfarandi verkefni er sjóðnum ætlað að styrkja:1) Rannsókna- eða þróunarverkefni einstaklinga, t.a.m. háskólanema, sem fjalla um aðstæður, umhverfi og/eða menningu Þingeyjarsýslna. 2) Rannsókna- og/eða þróunarverkefni á vegum Þekkingarseturs Þingeyinga.  Verkefnin tengist aðstæðum, umhverfi og/eða menningu Þingeyjarsýslna. 3)  Lokaverkefni við háskóla til B.A./B.S., M.A/M.S. gráðu (og sambærilegra eða hærri). Við mat á styrkhæfni skal tekið tillit til þeirrar prófgráðu sem stefnt er að með rannsóknarverkefninu. Verkefni sem er lokið þegar umsóknarfrestur rennur út, telst ekki styrkhæft.  

7. gr. Val styrkhæfra verkefna
Eftirfarandi forsendur liggja til grundvallar vali á verkefnum til að styrkja úr sjóðnum þegar auglýst er:
1) Verkefnið tengist Þingeyjarsýslum og fjalli um aðstæður, umhverfi og/eða menningu Þingeyjarsýslna.
2) Verkefnið þjóni ótvíræðum fræðilegum og/eða atvinnulegum tilgangi fyrir Þingeyjarsýslur eða hluta þeirra.
3) Verkefnið sé unnið í Þingeyjarsýslum að einhverju eða öllu leyti.
4) Bakgrunnur umsækjenda (menntun, reynsla, þekking), sé vænlegur til árangurs við verkefnavinnuna. Aukin menntun, reynsla og þekking umsækjenda gefur umsókn aukið vægi.
5) Verkefnið falli að sérstökum áhersluatriðum sem stjórn kann að auglýsa eftir við úthlutun hverju sinni.

Stjórn forgangsraðar umsóknum og úthlutar m.t.t. þess hvernig umsókn fellur að ofangreindum atriðum. Stjórn áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum, úthluta öllu úthlutunarfé til eins umsækjanda eða skipta því milli fleiri umsækjenda. Öllum umsóknum skal svarað en gildar umsóknir, sem reynist ekki unnt að styrkja, njóta ekki forgangs við næstu úthlutun heldur verða metnar á jafnréttisgrundvelli við nýjar umsóknir.  

8. gr. Úthlutun og kynning
Við úthlutun eftir auglýsingu styrkja tilkynnir stjórn sjóðsins umsækjendum um niðurstöðu sína um leið og hún liggur fyrir. Umsækjendur skulu eiga rétt á að kynna sér rökstuðning fyrir úthlutun styrks. Gera skal starfssamning við viðkomandi styrkþega. Samningurinn innifelur ákvæði um upphafs- og lokatíma verksins, framkvæmd kynninga og tímasetningar. Jafnframt skal í samningi tilgreint hvernig greiðslu styrks skuli háttað og hvernig farið verði með höfundarrétt verksins. Úthlutun gildir í 6 mánuði. Hafi styrkþegi ekki nýtt sér styrkinn á þeim tíma rennur féð til Verkefnasjóðs á nýjan leik. Verði verkefni ekki lokið á umsömdum tíma skv. samningi styrkveitanda og styrkþega er stjórn heimilt að afturkalla styrkveitingu og ber þá styrkþega að endurgreiða þann hluta styrksins sem búið er að greiða.  Miðað skal við að styrkurinn sé greiddur út í tvennu lagi gegn framvísun reiknings:1) 50% við undirritun samnings2) 50% við afhendingu lokaeintaks ritgerðar/verkefnisskýrslu  

9. Gildistaka
Reglur þessar eru settar af stjórn Þekkingarseturs Þingeyinga og taka gildi við samþykkt þeirra á stjórnarfundi. Breytingar á reglunum þurfa samþykki á stjórnarfundi Þekkingarseturs Þingeyinga.  

 


Mynd