Raunfærnimat - almennt
Hvað er raunfærni?
- Raunfærni er öll sú færni sem einstaklingur hefur öðlast í gegnum t.d. starfsreynslu, starfsnám, frístundir, nám, félagsstörf og fjölskyldulíf. Færni er hægt að afla sér bæði gegnum formlegt nám innan skólakerfisins og óformlegt nám utan skólakerfisins.
Hvað er raunfærnimat?
- Raunfærnimat er staðfesting og mat á færni einstaklingsins án tillits til þess hvernig eða hvar hennar hefur verið aflað. Markmiðið með raunfærnimati er að viðurkenna þá færni einstaklingsins sem hann býr yfir á ákveðnum tíma, þannig að hann þurfi ekki að sækja nám í því sem hann kann eða öðlist framgang í starfi. Raunfærnimat byggist á því að mögulegt sé að draga fram og lýsa raunfærni sem er fyrir hendi og skilgreina, meta og viðurkenna.
- Mat á raunfærni er mikil hvatning til náms fyrir einstaklinga á vinnumarkaðanum og gefur þeim tækifæri á að ljúka námi á sínum forsendum.
-
Mat á raunfærni getur verið hvati fyrir fullorðið fólk á vinnumarkaði, í hinum ýmsu starfsgreinum, til að ljúka formlegu námi. Þar með styrkist staða þess, fagstéttanna, fyrirtækjanna og þjóðarinnar almennt hvað varðar þekkingarstig og framþróun.
Raunfærnimat til styttingar á námi
Raunfærnimat til styttingar á námi miðar að því að meta raunfærni sem jafngilda náms áfanga eða hluta af náms áfanga og skipuleggja nám einstaklingsins með tilliti til raunfærni hans. Raunfærnimat er ekki gjaldfelling náms á nokkurn hátt. Með raunfærnimati má komast að komast að raunverulegri færni einstaklings og þannig koma í veg fyrir að hann þurfi að sækja nám í efni sem hann þegar kann. Þess konar viðurkenning getur stuðlað að aukinni þátttöku í símenntun og í því felst einnig sparnaður á tíma og fé fyrir einstaklinginn og samfélagið.
Raunfærnimat í atvinnulífinu
Raunfærnimat í atvinnulífinu miðar að því að skrá og fá staðfesta færni í því skyni að einstaklingurinn fái framgang í starfi eða finni starf við hæfi. Færni einstaklingsins er borin saman við færniviðmið viðkomandi starfa og metin á móti þeim.
Sjá nánar um raunfærnimat í bæklingi Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um raunfærnimat - Raunfærnibæklingur









