Ráðgjöf fyrir atvinnuleitendur
Atvinnuleitendur hafa aðgang að náms- og starfsráðgjöf hjá Þekkingarneti Þingeyinga. Náms- og starfsráðgjafi veitir fólki á öllum aldri ráðgjöf og upplýsingar til að auðvelda ákvarðanatöku vegna náms- og starfsvals. Einnig aðstoðar hann einstaklinga við að takast á við ýmis verkefni sem tengjast námi og starfsþróun. Í boði er að taka áhugasviðsgreininguna „Í leit að starfi“. Ráðgjöfin er einstaklingum að kostnaðarlausu.
Atvinnuleitendum sem vilja nýta sér náms- og starfsráðgjöf Þekkingarnets þingeyinga er bent á að hafa samband við Erlu Dögg í síma 464-5106 eða senda póst á netfangið erladogg@hac.is









