Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Markviss-ráðgjöf

Markviss uppbygging starfsfólks er aðferð þar sem unnið er kerfisbundið að starfsmannaþróun í fyrirtækjum og stofnunum. Með Markviss er metin og skipulögð menntun, þjálfun og annað sem tengist uppbyggingu starfsmanna. Aðferðir Markviss gefa stjórnendum og starfsmönnum kost á að meta sjálfir færni- og þekkingarþörf innan fyrirtækis eða stofnunar og skipuleggja uppbyggingu hvers starfsmanns í samræmi við niðurstöður matsins.  Markviss hentar vel stærri sem smærri fyrirtækjum og stofnunum, jafnt opinberum sem og í einkarekstri.

Árangur af Markviss

o   Öflugri starfsmenn.
o   Heildarsýn yfir færni starfsmanna.
o   Símenntunaráætlanir fyrir hvern starfsmann eða starfsmannahóp.
o   Opnari samskipti yfir og undirmanna.
o   Auðveldar lausn vandamála innan fyrirtækja og stofnana.
o   Fyrirtæki og stofnun fær kerfi til að vinna áfram að símenntun starfsmanna.
o   Fáðu Markviss ráðgjafa ÞÞ til að kynna hvernig Markviss getur nýst þínu fyrirtæki eða stofnun.

Markviss-ráðgjafar Þekkingarsetursins eru Helena Eydís helena@hac.is og Erla Dögg erladogg@hac.is 


Mynd