Ráðgjöf
Þekkingarnet Þingeyinga býður upp á ýmis konar ráðgjöf. Bæði er um að ræða ráðgjöf við einstaklinga þ.e. náms- og starfsráðgjöf og ráðgjöf við fyritæki, stofnanir og félagasamtök þ.e. náms- og starfsráðgjöf og Markviss ráðgjöf.
Þekkingarnet Þingeyinga hefur frá árinu 2006 tekið þátt í verkefni á vegum Fræðslumiðstöðvar Atvinnulífsins sem kallast Þitt val - þín leið - Náms og starfsráðgjöf á vinnustað. Einstaklingar sem og fyrirtæki geta óskað eftir að fá náms- og starfsráðgjafa í heimsókn þar sem verkefnið er kynnt og starfsmönnum gefst síðan kostur á viðtali við ráðgjafa. Ráðgjöfin er bæði einstaklingnum og fyrirtækinu að kostnaðarlausu.
Á Þekkingarsetrinu starfa tveir Markvissráðgjafar. Markviss er ráðgjöf fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök þar sem tekið er á uppbyggingu starfsmanna, stefnumótun og fleiru sem viðkemur innra starfi, endurmenntun starfsmanna og starfsþróun þeirra.








