Símenntun
Þekkingarnet Þingeyinga hefur skilgreindu hlutverki að gegna á sviði símenntunar og fullorðinsfræðslu í Þingeyjarsýslum. Þetta hlutverk var áður í höndum FræÞings, Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga sem sameinuð var Þekkingarsetri Þingeyinga í júní 2006. Þekkingarnetið er nú ein af níu símenntunarmiðstöðvum á landinu sem menntamálaráðuneytið fjármagnar að nokkru leyti. Hlutverk Þekkingarnetsins á þessu sviði er að efla menntunarmöguleika í Þingeyjarsýslum. Þetta er gert með því að bjóða upp á námskeið tengd atvinnulífi og tómstundum og hafa milligöngu um fjarnámsframboð í héraðinu í samráði við skóla á viðkomandi skólastigum. Þekkingarnetið sinnir einnig námsráðgjöf og stuðningi við námsfólk og fólk sem hyggur á nám. Þekkingarnetið vinnur jafnframt með fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum við mótun símenntunarstefnu þeirra og framkvæmd stefnunnar.








