Aftur á forsíđu
Símenntun  

     

Þekkingarnet Þingeyinga hefur skilgreindu hlutverki að gegna á sviði símenntunar og fullorðinsfræðslu í Þingeyjarsýslum.  Þetta hlutverk var áður í höndum FræÞings, Fræðslumiðstöðvar Þingeyinga sem sameinuð var Þekkingarsetri Þingeyinga í júní 2006.  Þekkingarnetið er nú ein af níu símenntunarmiðstöðvum á landinu sem menntamálaráðuneytið fjármagnar að nokkru leyti.  Hlutverk Þekkingarnetsins á þessu sviði er að efla menntunarmöguleika í Þingeyjarsýslum.  Þetta er gert með því að  bjóða upp á námskeið tengd atvinnulífi og tómstundum og hafa milligöngu um fjarnámsframboð í héraðinu í samráði við skóla á viðkomandi skólastigum.  Þekkingarnetið sinnir einnig námsráðgjöf og stuðningi við námsfólk og fólk sem hyggur á nám.  Þekkingarnetið vinnur jafnframt með fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum við mótun símenntunarstefnu þeirra og framkvæmd stefnunnar.

Hagnýtar upplýsingar

Starfssvæði



 English version

 


Námsvísir haustönn 2010


Atvinnuleitendur 

Menntatorg

 

Þekkingarnet Þingeyinga • Hafnarstétt 3 • 640 Húsavík • Sími: 464 5100 • Fax: 464 5101 • Netfang: hac@hac.is