|
Þekkingarnet Þingeyinga getur tekið að sér stundakennslu og fyrirlestra eftir samkomulagi hverju sinni á sérsviði starfsfólks stofnunarinnar. Frá árinu 2005 hefur Óli Halldórsson forstöðumaður sinnt fastri kennslu og umsjón eins 3. árs námskeiðs í umhverfisfræðum á vegum Þekkingarnetsins við Háskólann á Akureyri.
Starfsfólk Þekkingarnetsins hefur menntun og sérhæfingu á ýmsum sviðum, þessum helstum: umhverfisfræði, uppeldis-/kennslufræði, náms- og starfsráðgjöf, kynjafræði, verkefnastjórnun, stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu.
Þekkingarnetið hefur einnig milligöngu um háskólakennslu annarra en eigin starfsmanna, þ.e. um fjarfundabúnaði stofnunarinnar. Þannig hafa á síðustu misserum komið einstaklingar og kennt í gegnum fjarfundabúnaði til háskólanna og nemenda sem gjarnan eru þá staðsettir á höfuðborgarsvæðinu. Með þessu móti snýst hin hefðbundna notkun búnaðanna við, þar sem algengast er að kennararnir sitji inni í háskólunum og miðli sinni kennslu út.
Ef óskað er eftir liðsinnis Þekkingarnets Þingeyinga í stundakennslu, eða aðstöðu til fjarkennslu frá starfsstöðvum Þekkingarnetsins þá hafið samband við forstöðumann; oli@hac.is - 464 5100
|