Fundir, framkoma og ræðumennska
Ertu á leið í framboð?
Siturðu oft árangurslitla fundi?
Viltu geta haldið ræður í brúðkaupum eða merkisafmælum?
Þekkingarsetur Þingeyinga og ITC Fluga standa saman að námskeiði í framsögn, framkomu,
fundarsköpum og ræðumennsku.
Námskeiðið hentar vel fyrir þá sem vilja læra góða framsögn og framkomu í ræðupúlti hvort sem
er á opinberum vettvangi eða á fjölskyldu-/vinamótum, læra að spyrja markvisst á fundum, koma
með tillögur eða bókanir á fundum og læra betur um fundasköp.
Námskeiðið verður laugardaginn 13. mars kl. 9:00-15:00 og kostar 10.500,-
Leiðbeinendur verða félagar í ITC Flugu.
Skráningar og upplýsingar í síma 464-5100 og á hac@hac.is
|