Endurmenntun Háskóla Íslands stendur fyrir námskeiði um Hrafnkels sögu Freysgoða, Vopnfirðinga sögu og tvær Austfirðinga sögur á fimmtudagskvöldum.
Námskeiðin er hægt að sækja í fjarfundi á Þekkingarsetri Þingeyinga eða á öðrum stöðum þar sem Þekkingarsetrið er með fjarfundabúnað. Námskeiðið hefst 28. janúar og kostar 19.500 kr.
Á námskeiðinu mun Magnús Jónsson taka fyrir tvær sögur, hina athyglisverðu sögu um Hrafnkel Freysgoða og harmþrungnu sögu Vopnfirðinga. Auk þeirra verður fjallað um tvo spennandi Íslendingaþætti.
Gildi Hrafnkels sögu felst fyrst og fremst í því, hvílíkt listaverk hún er. Fáar Íslendingasögur hafa hlotið jafn mikla athygli og segja má að í henni endurspeglist umræðan um tilgang og túlkun Íslendingasagna. Sagan er knöpp og tiltölulega einföld að gerð, persónur fáar og aðeins fjallað um eina deilu. Í stuttu máli snýst sagan um, hvernig Hrafnkell Freysgoði fellur og rís. Umfjöllun Sigurðar Nordals á sögunni skipti sköpum í íslenskum fræðum en hann taldi að hún væri “ein hin fullkomnasta stutta bóksaga (short novel), sem til er í heimsbókmenntunum."
Vopnfirðinga saga segir frá harðvítugum deilum og er sérstæð og harmþrungin vegna ættartengsla og nábýlis. Sagan þykir nokkuð þáttakennd en einstaka kaflar eru meistaralega vel gerðir. Deilumálin hefjast á milli máganna Brodd-Helga á Hofi og Geitis Lýtingssonar í Krossavík. Í lokin nást sættir með sonum þeirra, Bjarna syni Brodd-Helga og Þorkatli frænda hans og fóstbróður. Mannlýsingar eru skýrt mótaðar, höfundurinn lýsir þeim mágum og frændum hlutlaust en hverjum með sínum hætti.
Samhliða Vopnfirðinga sögu verður fjallað um tvo tengda Íslendingaþætti, Þorsteins sögu hvíta og Þorsteins þátt stangarhöggs en síðarnefndi þátturinn er margslunginn og snilldarlega sagður.
Skrá mig
|