Beint á leiđarkerfi vefsins
Aftur á forsíđu

Háskólakennsla

Þekkingarnet Þingeyinga getur tekið að sér stundakennslu og fyrirlestra eftir samkomulagi hverju sinni á sérsviði starfsfólks stofnunarinnar. Frá árinu 2005 hefur Óli Halldórsson forstöðumaður sinnt  fastri kennslu og umsjón eins 3. árs námskeiðs í umhverfisfræðum á vegum Þekkingarnetsins við Háskólann á Akureyri.
Starfsfólk Þekkingarnetsins hefur menntun og sérhæfingu á ýmsum sviðum, þessum helstum:  umhverfisfræði, uppeldis-/kennslufræði, náms- og starfsráðgjöf, kynjafræði, verkefnastjórnun, stjórnmálafræði og opinberri stjórnsýslu.  

Þekkingarnetið hefur einnig milligöngu um háskólakennslu annarra en eigin starfsmanna, þ.e. um fjarfundabúnaði stofnunarinnar.  Þannig hafa á síðustu misserum komið einstaklingar og kennt í gegnum fjarfundabúnaði til háskólanna og nemenda sem gjarnan eru þá staðsettir á höfuðborgarsvæðinu.  Með þessu móti snýst hin hefðbundna notkun búnaðanna við, þar sem algengast er að kennararnir sitji inni í háskólunum og miðli sinni kennslu út. 

Ef óskað er eftir liðsinnis Þekkingarnets Þingeyinga í stundakennslu, eða aðstöðu til fjarkennslu frá starfsstöðvum Þekkingarnetsins þá hafið samband við forstöðumann; oli@hac.is - 464 5100


Mynd