Starfssvæði
Þekkingarnet Þingeyinga hefur aðsetur á Húsavík en starfssvæði þess er Þingeyjarsýslur, Norður og Suður, eða frá Vaðlaheiði og austur á Bakkafjörð. Svæðið þekur um 18% landsins og er akstursvegalengd milli enda svæðisins 320 km.
Á svæðinu búa um 5000 manns og er búsetuform mjög fjölbreytt. Húsavík er stærsti þéttbýliskjarninn með um 2400 manns en minni þéttbýlisstaðir eru á Þórshöfn, Raufarhöfn, Kópaskeri, við Mývatn og á Laugum. Þá eru víðfem landbúnaðarhéruð í sýslunum, bæði Norður- og Suður-Þingeyjarsýslum.
Þingeyjarsýslur eru mjög fjölbreyttar hvað náttúrufar varðar. Á svæðinu má finna mörg merkileg náttúrufyrirbæri, bæði á sviði jarðfræði og líffræði. Í Þingeyjarsýslum eru enda stór náttúruverndarsvæði, þ.e. Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum og Láxár- og Mývatnssvæðið.
Heimskautsbaugurinn liggur þvert í gegnum Grímsey og nyrsti tangi landsins, Hraunhafnartangi á Melrakkasléttu, teygir sig í átt að honum.
Menningarstarf í Þingeyjarsýslum er blómlegt og á sér merka sögu sem endurspeglast vel í öflugu safnastarfi.









