Beint á leiðarkerfi vefsins
Aftur á forsíðu

Náttúra

Jarðfræði
Jarðfræði Þingeyjarsýslna einkennist af gosbeltinu sem gengur í gegnum mitt Norðausturland frá norðri til suðurs. Gosbeltið gengur í sjó fram í Öxarfirði og síðan norður og vestur í svokölluðu Tjörnesbrotabelti sem tengir saman Öxarfjörð og rekbelti sem liggja um Kolbeinseyjarhrygg. Eldvirkni fylgir því að vera á mótum tveggja jarðskorpufleka á hreyfingu og það bera ummerki á Norðausturlandi vott um. Á Tjörnesi, skaganum milli Skjálfanda og Öxarfjarðar, er að finna merkileg jarðlög þar sem má lesa í jarðsöguna milljónir ára aftur í tímann. Frá Vatnajökli renna svo tvær stórar jökulár til sjávar á Norðausturlandi, þ.e. Sjálfandafljót vestar og Jökulsá á Fjöllum austar. Umhverfi Jökulsár myndar sérstæða heild sem verður að teljast með stórbrotnari náttúrufyrirbærum landsins. Nægir þar að nefna Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur, Hafragilsfoss, Dettifoss og Selfoss. Um þetta svæði var Þjóðgarðurinn í Jökulsárgljúfrum stofnaður árið 1973.

Gróður og dýralíf
Gróðurfar er fjölbreytt á Norðausturlandi og frábrugðið öðrum landshlutum að mestu vegna svokallaðs landræns loftslags eða meginlandsloftslags, en slíku loflagi fylgja ákeðin einkenni í gróðurfari. Miklar andstæður mætast í gróðurfari á Norðausturlandi, allt frá gróskumiklum svæðum með ríkulegum gróðri yfir í örfoka land þar sem gróðurfar er afar lítið og fábreytt. Dýralíf á Norðausturlandi einkennist ef til vill fyrst og fremst af fjölskrúðugu fuglalífi. Á svæðinu er að finna margvísleg búsvæði fugla og fjölbreytileiki fuglafánunnar er óvíða meiri hér á landi. Á Norðausturlandi er að finna nokkur votlendissvæði sem fræg eru fyrir fjölskrúðugt fuglalíf, t.d. Mývatns- og Laxársvæðið sem stjórnvöld hafa tilnefnt sem sk. Ramsar-verndarsvæði. Sjávarströndin er búsvæði sjófuglanna og eru á Norðausturlandi nokkur þekkt fuglabjörg. Má þar nefna Grímsey, Rauðanúp og Langanes.

(Sjá nánar um náttúrufar á heimasíðu Náttúrustofu Norðausturlands: www.nna.is)


Mynd