Háskólanám
Þekkingarnet Þingeyinga starfrækir háskólanámssetur að Hafnarstétt 3 á Húsavík. Þetta setur er kallað í heild "Þekkingarsetrið á Húsavík" og er þar á vegum Þekkingarnets Þingeyinga kennslustofa með fjarfundabúnaði, fullbúin les- og vinnuaðstaða og prent- og ljósritunaraðstaða fyrir háskólanema. Auk þess kaffi- og matstofa og önnur sjálfsögð sameiginleg aðstaða. Þekkingarnetið er tengt sk. FS-neti, sem er háhraðanet framhaldsskóla og símenntunarmiðstöðva. Þráðlaust netsamband er í lesrýminu og kennslustofunni sem gert er ráð fyrir að háskólanemar hagnýti sér eftir þörfum við vinnu sína innan Þekkingarsetursins. Með tilkomu háskólanámssetursins stórbötnuðu möguleikar háskólanema sem hafa búsetu á Húsavíkursvæðinu til að stunda nám sitt. Þekkingarnet Þingeyinga rekur háskólanámssetrið og þjónustar háskólanemana sem nýta sér aðstöðu setursins.
Á Þórshöfn var opnað á árinu 2009 Menntasetrið á Þórshöfn, en þar er mönnuð starfsstöð Þekkingarnets Þingeyinga. Menntasetrið er rekið samhliða framhaldsskóladeild Framhaldsskólans á Laugum á Þórshöfn og í nánu samstarfi við skólann. Langanesbyggð stendur að baki verkefninu og hefur lagt til húsnæði til starfseminnar. Í Menntasetrinu á Þórshöfn býður Þekkingarnet Þingeyinga fjarfundabúnaði til kennslu, náms og funda, lesrými fyrir fjarnema og aðstöðu til prófatöku.









